Komiði sæl og GLEÐILEGT ÁR
*2008*
Það er frekar langt síðan ég bloggaði seinast enda nóg búið að vera að gera.... Prófin tóku enda og gengu bara mjög vel, Ragga og Dabbi komu heim frá Danmörk, Sandra kom frá Reykjavík og Örn kom heim af sjónum
Það var alveg ótrúlega gott að fá alla heim svona rétt yfir jólin!
Jólin voru mjööög góð hjá mér. Borðaði rosa góðan mat og fékk mjög flottar jólagjafir
Það er nú svolítið skemmtilegt að segja frá því að ég og Örn gáfum hvort öðru sömu jólagjöfina án þess að vita af því
Við gáfum hvort öðru gjafabréf frá Icelandair svo nú förum við að fara út saman!
Svo fékk ég líka geggjaða hálsfesti frá honum
Ég fékk líka fullt af öðrum gjöfum.....mjög flott föt, geisladisk, úr, fullt fullt af flottu bað og snyrtidóti, eitthvað inn á heimilið, myndaramma, leðurveski, ilmvatn, nammi og fullt meir af flottu dóti
Þegar við vorum búin að borða og opna pakkana og vera smá tíma saman við fjölskyldan fór ég upp á brekku og hafði það gott með Erni og fjölskyldunni hans
Á jóladag var svo matarboðið upp í sveit
Það er nú alltaf jafn gaman að koma þangað og hitta alla saman.... Örn fór auðvitað með mer og voru Gunna, Ingþór, Kristinn, Siggi, Kristófer Þór, Kristrún og Isis hundurinn þeirra þarna. Hrefna, Kobbi, Kristín, Þráinn og Trausti litli, Erla, Óli og Haukur Ingi litli voru líka mætt og svo við öll í fjölskyldunni minni ég, Örn, Ragga, Dabbi, mamma, pabbi, Kristófer, Elín Ósk, Kristvin Máni og Casper hundurinn þeirra
Svo voru auðvitað Afi í sveitinni og Gutti hundurinn hans á svæðinu
Þarna borðuðum við dýrindis mat eins og alltaf
Seinnipartinn var svo matarboð heima hjá Erni og var þá auðvitað líka mjög góður matur.... Þá var haldið áfram að borða og borða og svo fórum við Örn, mamma hans og systkini í sma göngutúr í góða veðrinu svona rétt til að búa til smá pláss fyrir eftirmatinn
Annan í Jólum þurfti Örn svo að fara út á sjó aftur..... Ég fór þá í matarboð hjá afa á húnabraut með mömmu og pabba! Þar fáum við líka alltaf rosa gott hangikjöt og svo eftirmat á eftir
Jáhh það er sko endalaust borðað um jólin.......
Ég vann 2 daga í jólafríinu og voru mjög fá börn í leikskólanum þá tvo daga.....
29.des var svo fyrirtækjamótið í fótbolta! Þetta er alltaf jafn skemmtilegt mót og við stelpurnar tökum alltaf ´þátt á hverju ári bara til þess að vera með þótt við eigum ekkert í liðin sem keppa á móti okkur
30.desember kom svo Örn Steinar heim
Þann dag var alveg snar vitlaust veður og þurfti björgunarsveitin hérna að sinna nokkrum útköllum! Í þessu brjálaða veðri fuku þök af húsum, rafmagnsstaurar brotnuðu og aumingja jólatréð við kirkjuna brotnaði
31.des var svo auðvitað gamlársdagur..... Ég og Örn vöknuðum snemma með Kristvin Mána og var nú aðeins dekrað við litlu dúlluna
Svo var bara gert allt klárt fyrir áramótin...... Um kvöldið borðuðum við svo mjög góðan mat og höfðum það gott.... Elín og Kristófer voru heima hjá okkur og Örn Steinar kom um leið og hann var búinn að borða með fjölskyldunni sinni og horfði á skaupið með okkur
Eftir skaupið komu svo fjölskyldan hans og fjölskyldan hennar Elínar og við fórum öll út og skutum upp saman og fórum svo inn og héldum smá áramótaparty
Sandra og Gissur komu svo yfir og við fórum svo öll saman á áramótaballið!
Ballið byrjaði mjög vel þrátt fyrir að það var meirihlutinn þarna 16 ára krakkar en var nú ekkert allt mjög skemmtilegt..... Svo við fórum bara heim
Annars er árið búið að byrja frekar illa..... Þegar ég ætlaði að knúsa múttu Gleðilegt ár þegar klukkan var rétt um 00:00 þá flaug ég á hausinn í hálkunni og skall niður og bjórinn minn helltist yfir mig alla
haha þetta var nú samt alveg mjög fyndið! Svo 2.janúar tókst mér að sofa yfir mig í fyrsta skiptið í vinnunni, sem var mjöööög óþægilegt....
Og þann sama dag þurfti Örn að fara útá sjó aftur.....
En ég verð nú samt að segja ykkur frá því hvað hann er nú sætur..... Í dag þegar eg var að klára að vinna og ætlaði að fara í skónna mína beið mín rósavöndur í skónum mínum og umslag sem stóð á Sara.... Þá hafði Örn hringt í einhvern og beðið um að koma þessu til mín því hann er úti á sjó
Ég vissi ekkert hvernig ég átti að vera þegar ég las kortið roðnaði bara í klessu og átti ekki til orð"TAKK ÆÐISLEGA FYRIR MIG ÁSTIN MÍN!!! ELSKA ÞIG
"
'Eg og Helga ætluðum svo að vera rosa duglegar í dag og gerðum aðra tilraun til þess að fara í ræktina saman en auðvitað var hún þá lokuð
Svo við tókum bara smá rúnt og svo var bara púlað í bílskúrnum á tækinu þar
En jæja ég held að þetta sé komið meira en nóg....
Hafiði það gott
Sara Lind